Hæhæ,
enn einn vandræðalegur dagur fyrir mig. Jæja hann pabbi kom
hingað inn og ég var að segja honum að internetið væri bilað
og að ég kæmist aldrei inná msn nema með því að taka niður
vírusvarnarkerfið og auðvitað leyfði hann það ekki. En jæja,
ég var að hlusta á Hot hot heat, bara að prófa hvort að mér
finndist hún ennþá góð, og þá sagði pabbi: ,,Dísús Kræst
slökktu á þessu argi!" og þá varð ég ekkert smá pirruð, hann
getur bara ekki hætt að segja Dísús Kræst sem er brot á einum
af tíu boðorðum Guðs! Þau eru bara tíu! ekki eins og það sé
erfitt að fara eftir þeim. Síðan fór hann út og lokaði
hurðinni, ég mæmaði fokk jú og setti upp löngataung en um
leið og ég gerði það opnaði hann aftur hurðina og sá mig
þarna að vera að senda honum fokk jú merkið, ég skammaðist
mín ekkert smá!
Hann sagði þá allveg: ,,Ég náði þessu! Ég
náði þessu!" og hló. En ég meina, af hverju að guðlasta í
staðin fyrir að segja bara ekkert, ég held því altaf inni í
mér og segi í staðinn Shit eða Eff. Það er ekkert mál, nema
þegar maður er í einhverjum leik og maður er að tapa
Æi, ég og vandræðaleg svokölluð "móment" eða á íslensku,
augnablik. Eitthvað til að leyfa öðrum að skemmta sér sem
koma á þessa síðu, en til þess að leyfa mér að skammast
mín.
Hey, ég var
að fá afmælisgjöfina mína frá Guðlaugu! Það eru tveir geisladiskar,
Amos Lee og Camera Obscura, sem er rosalega þægilegt og rólegt.
Síðan til að toppa þetta allt er það bókin Naked eftir
David Sedaris (eða eins og hann myndi segja: ,,David
Þedaris)!!!

Hlakka ekkert smá til að klára Artemis
Fowl: Blekkingin svo að ég geti lesið hina bókina!
Bókin er
reyndar á ensku, en það er svo miklu skemmtilegra því að þá sér
maður alveg hvað hann er að segja frá. Þetta eru allt ævisögurnar
hans sem að ég hef lesið eftir hann, semsagt: Me talk
pretty one day og síðan núna Naked. Og lífið hans er
líka fyndið og vandræðalegt og síðan eru líka kaflar sem eru meira
alvarlegir. En ég ætla að taka smá úr því sem stendur aftan á
kápunni:
"David
Sedaris brings X-ray vision to this strip search of the human
psyche, sparing no one - including himself.... His work is
charahterized by a brazen candor, a heart of gold, and the sort of
blithely sophisticated, loopy humor that might have resulted if
Dorothy Parker and James Thurber had had a love child." -
entertainment weekly.
"Hilariously
entertaining.... The essays in Naked re-create the
catharatic, the spirutual experience of laughing so hard that it
hurts." -francine prose, new york observer.